Smiðja
Til baka

Skata

Reykjavík

Fyrstu íslensku stólarnir úr formbeygðum krossviði, hannaðir af Halldóri Hjálmarssyni húsgagna- og innanhússarkitekt (1927-2010).

Skata — 1
Skata — 2
Skata — 3
Skata — 4
Skata — 5
Skata — 6

Sagan okkar

SKATA  og HAMAR eru fyrstu íslensku stólarnir úr formbeygðum krossviði, ásamt því að vera meðal fyrstu fjöldaframleiddra nútímahúsgagna á Íslandi og þau elstu sem enn eru í framleiðslu.
Eftir langa bið hófst framleiðsla þeirra að nýju árið 2008 og eru þeir nú fáanleigir úr eikarspón í ýmsum litbrigðum, en einnig er hægt að sérpanta í öðrum viðartegundum.  

​Hönnuður: Halldór Hjálmarsson, húsgagna- og innanhússarkitekt (1927-2010).

Halldór lærði húsgagnasmíði hjá föður sínum og síðar húsgagnaarkitektúr í Kaupmannahöfn, þar sem hann lærði hjá meisturum eins og Hans J. Wegner og Poul Kjærholm. 
Að námi loknu hóf hann eigin framleiðslu, samhliða því að hanna ýmis önnur húsgögn og innréttingar, en annað þekkt verk hans er Kaffihúsið Mokka við Skólavörðustíg sem enn stendur að mestu óbreytt.  

Kaupa gjafabréf

Kauptu gjafabréf, nothæft hjá þessari smiðju og öllum okkar samstarfssmiðjum

Vefsíða: www.skata.is