Skilmálar
Síðast uppfært: 15. október 2026.
Þessi vefsíða er í eigu Smidigt ehf., kt. 550526-0420, Drápuhlíð 48, 105 Reykjavík, hér eftir nefnt Smiðja. Með kaupum á gjafabréfi á smidja.gift samþykkir kaupandi eftirfarandi skilmála.
Smiðja selur gjafabréf fyrir íslenskt handverk. Smiðja er útgefandi og seljandi gjafabréfanna í eigin nafni og kaupandi kaupir gjafabréf af Smiðju, en ekki af einstökum samstarfsaðila.
Pöntun og greiðsla
Pöntun er staðfest þegar greiðsla hefur borist. Staðfesting og gjafabréf eru send á það netfang sem kaupandi tilgreinir í kaupferlinu.
Gjafabréf eru seld fyrir þá fjárhæð sem kaupandi velur í kaupferlinu, að lágmarki 1.000 kr. og að hámarki 100.000 kr. fyrir hvert gjafabréf. Smiðja getur breytt lágmarks- og hámarksfjárhæð, en slík breyting hefur ekki áhrif á gjafabréf sem þegar hafa verið keypt. Fjárhæð gjafabréfs kemur fram í kaupferlinu, í greiðslustaðfestingu og á gjafabréfinu sjálfu.
Afhending
Gjafabréf eru almennt afhent rafrænt með tölvupósti. Gjafabréfið er sent sem PDF-skjal með gjafakóða sem handhafi notar við innlausn.
Ef valið er prentað gjafabréf er það sent með póstþjónustu gegn viðbótargjaldi.
Ef kaupandi velur að bæta við persónulegri kveðju ber kaupandi ábyrgð á efni hennar. Smiðja getur hafnað eða fjarlægt kveðju sem er ólögmæt, meiðandi, hatursfull eða brýtur gegn réttindum annarra.
Notkun gjafabréfa
Gjafabréf Smiðju eru gefin út til handhafa. Sá sem framvísar gildum gjafakóða getur notað gjafabréfið sem greiðslu hjá samstarfsaðila Smiðju.
Gjafabréf má nota hjá hvaða samstarfsaðila Smiðju sem er, svo lengi sem viðkomandi er skráður samstarfsaðili á vefsíðu Smiðju þegar gjafabréfið er notað.
Samstarfsaðilum Smiðju getur fjölgað eða fækkað. Smiðja ábyrgist því ekki að allir samstarfsaðilar sem voru skráðir þegar gjafabréf var keypt verði enn samstarfsaðilar þegar gjafabréfið er notað. Smiðja ábyrgist ekki að vörur samstarfsaðila sem eru sýnilegar á vefsíðu Smiðju séu fáanlegar þegar gjafabréf er notað. Verði gjafabréf ónýtanlegt vegna þess að engir samstarfsaðilar eru skráðir á vefsíðu Smiðju gildir kaflinn „Rekstrarstöðvun eða lokun Smiðju“.
Gjafabréf má nýta í einu lagi eða í áföngum. Eftirstöðvar haldast á gjafabréfinu þar til það er fullnýtt eða gildistími þess rennur út.
Gjafabréf Smiðju eru inneign í íslenskum krónum og tryggja ekki fast verð á tiltekinni vöru eða þjónustu. Verð og framboð samstarfsaðila geta breyst frá kaupum til innlausnar. Ef verð er hærra en inneign gjafabréfsins greiðir handhafi mismuninn til samstarfsaðila.
Gildistími
Gjafabréf Smiðju gilda í tvö ár frá útgáfudegi. Lokadagur gildistíma kemur fram á gjafabréfinu.
Að gildistíma liðnum fellur gjafabréfið úr gildi. Ónýtt inneign sem stendur eftir við lok gildistíma er ekki endurgreidd.
Handhafar gjafabréfa eru hvattir til að nýta þau innan gildistíma.
Skipti, skil og endurgreiðslur
Kaupandi getur fallið frá kaupum á gjafabréfi innan 14 daga frá afhendingu þess, hafi gjafabréfið ekki verið notað að hluta eða í heild.
Ósk um að falla frá kaupum skal senda á smidja@smidja.gift. Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, eigi síðar en 14 dögum eftir að beiðni berst.
Endurgreidd er sú fjárhæð sem kaupandi greiddi fyrir gjafabréfið. Staðlaður afhendingarmáti er rafræn afhending með tölvupósti, kaupanda að kostnaðarlausu. Velji kaupandi prentað gjafabréf sent með pósti gegn viðbótargjaldi er það gjald ekki endurgreitt.
Gjafabréf Smiðju eru ekki innleysanleg í reiðufé og eru ekki endurgreidd, nema þegar kaupandi nýtir lögbundinn rétt til að falla frá kaupum samkvæmt framangreindu eða samkvæmt kaflanum „Rekstrarstöðvun eða lokun Smiðju“.
Framsal og varðveisla gjafakóða
Það er á ábyrgð handhafa að varðveita gjafakóðann með öruggum hætti. Smiðja ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða vegna þess að gjafabréf eða gjafakóði glatast, er stolið eða er notað án heimildar eftir afhendingu til kaupanda.
Smiðja getur þó, eftir atvikum, aðstoðað við að skipta um gjafakóða, svo sá gamli verði ógildur og eftirstöðvar færist á nýjan, ef kaupandi getur sýnt fram á kaupin.
Endursala gjafabréfa Smiðju í atvinnuskyni er óheimil nema með skriflegu samþykki Smiðju.
Ábyrgð á vörum og þjónustu samstarfsaðila
Smiðja gefur út og selur gjafabréfin og ber ábyrgð á gjafabréfinu sjálfu, þar á meðal afhendingu, inneign, gjafakóða og gildistíma.
Vörur, þjónusta, námskeið eða upplifanir sem greitt er fyrir með gjafabréfi eru veittar af viðkomandi samstarfsaðila. Samstarfsaðili ber ábyrgð á gæðum, afhendingu, framkvæmd, öryggi og eigin skilmálum gagnvart viðskiptavini.
Ef vara eða þjónusta samstarfsaðila stenst ekki væntingar, fellur niður eða veldur tjóni, fer málið eftir skilmálum og ábyrgð viðkomandi samstarfsaðila. Smiðja ber ekki ábyrgð á vörum eða þjónustu samstarfsaðila umfram ábyrgð sína á gjafabréfinu sjálfu.
Ekkert í skilmálum þessum takmarkar lögbundin réttindi neytenda.
Persónuupplýsingar
Smiðja vinnur persónuupplýsingar í tengslum við kaup, afhendingu og notkun gjafabréfa. Meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu Smiðju og lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Breytingar á skilmálum
Smiðja áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Sú útgáfa sem birt er á vefsíðu Smiðju hverju sinni gildir um kaup sem fara fram eftir birtingu hennar.
Breytingar hafa ekki afturvirk áhrif á gjafabréf sem þegar hafa verið keypt, nema breytingarnar séu kaupanda eða handhafa til hagsbóta.
Rekstrarstöðvun eða lokun Smiðju
Ákveði Smiðja að hætta rekstri vefsins, sölu gjafabréfa eða þjónustu vegna innlausnar gjafabréfa tilkynnir Smiðja það á vefsíðu sinni og með tölvupósti til kaupenda og viðtakenda virkra gjafabréfa, með eins góðum fyrirvara og unnt er.
Smiðja veitir þá handhöfum hæfilegan frest til að nýta gjafabréf sín hjá skráðum samstarfsaðilum. Ef ekki er unnt að veita slíkan frest, eða ef gjafabréf verður ónýtanlegt vegna lokunar þjónustunnar eða þess að engir samstarfsaðilar eru skráðir á vefsíðu Smiðju, endurgreiðir Smiðja ónýtta inneign gjafabréfsins.
Ef greiðslustöðvun, gjaldþrot eða sambærileg atvik koma í veg fyrir innlausn gjafabréfs eða endurgreiðslu gilda réttindi kaupenda og handhafa samkvæmt almennum reglum kröfu- og gjaldþrotaréttar.
Kvartanir og fyrirspurnir
Fyrirspurnir eða kvartanir vegna gjafabréfa Smiðju má senda á smidja@smidja.gift. Smiðja leitast við að svara kvörtunum innan 10 virkra daga frá móttöku.
Ef ágreiningur leysist ekki með samkomulagi getur neytandi leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, eftir því sem við á.
Lög og varnarþing
Um kaup á gjafabréfum Smiðju og skilmála þessa gilda íslensk lög.
Komi til ágreinings skulu aðilar fyrst leitast við að leysa málið með samkomulagi.
Takist ekki að leysa ágreining með samkomulagi skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, að því marki sem slíkt er heimilt samkvæmt lögum.