Smiðja

Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: 14. október 2026.

Smidigt ehf. („Smiðja“, „við“) rekur smidja.gift, þar sem hægt er að kaupa gjafabréf sem gilda hjá íslensku handverksfólki. Hér kemur fram hvaða persónuupplýsingar við vinnum, í hvaða tilgangi, hverjir fá þær, hve lengi þær eru geymdar og hvaða réttindi þú hefur.

Vinnslan fer fram samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR).

1. Ábyrgðaraðili

Samstarfsaðilar okkar bera sjálfir ábyrgð á þeim upplýsingum sem þeir safna, til dæmis þegar þú bókar námskeið hjá þeim. Um þá vinnslu gilda þeirra eigin skilmálar.

2. Hvaða upplýsingum við söfnum

Ef þú kaupir gjafabréf

  • Nafn og netfang.
  • Upplýsingar um pöntunina: upphæð, fjöldi gjafabréfa, afhendingarmáti, afsláttarkóði ef hann var notaður, hvenær pantað var og hvaða útgáfu skilmála þú samþykktir.
  • Hvort þú vilt fá fréttir og tilboð í tölvupósti.
  • Staðfesting á greiðslu frá Teya. Við fáum aldrei kortanúmer eða öryggisnúmer. Þú slærð kortaupplýsingarnar inn á greiðslusíðu Teya.

Um þann sem fær gjöfina (valkvætt)

  • Nafn og netfang, textinn sem þú skrifar á gjafabréfið (Til, Frá og kveðja) og hvenær gjafabréfið á að berast.
  • Fyrir prentað kort: nafn og heimilisfang.

Með því að gefa okkur upplýsingar um annan einstakling staðfestir þú að þér sé heimilt að láta okkur þær í té. Ekki skrifa viðkvæmar upplýsingar í kveðjuna, til dæmis um heilsufar.

Um gjafabréfið sjálft

  • Kóði gjafabréfsins (geymdur dulkóðaður), inneign, gildistími og hvar, hvenær og fyrir hve mikið það hefur verið notað.

Ef þú hefur samband við okkur

  • Nafn, netfang og skilaboð, til dæmis úr samstarfsforminu á vefnum.

Starfsfólk samstarfsaðila

  • Nafn, netfang, aðgangsorð (geymt á óafturkræfu formi), upplýsingar fyrir tveggja þrepa auðkenningu og hvort viðkomandi er eigandi eða starfsmaður.
  • Skrá yfir innskráningar, innlausnir og aðrar aðgerðir, með tíma, IP-tölu og upplýsingum um vafra. Hún er notuð til að verjast misnotkun og til að hverri aðgerð megi fylgja aftur til þess sem framkvæmdi hana.

Þegar þú notar vefinn

  • Tæknilegar upplýsingar sem fylgja hverri heimsókn (IP-tala, vafri, slóð). Þær eru notaðar til öryggis, til að verjast misnotkun og til að finna villur.
  • Vefmæling (Umami) sem telur heimsóknir og hvaða síður eru skoðaðar. Hún notar engar vafrakökur og greinir ekki hver þú ert.
  • Aðeins ef þú samþykkir vafrakökur: nákvæmari notkunargreining (PostHog) sem sýnir hvernig vefurinn er notaður, t.d. hvar er smellt og skrunað, svo við sjáum hvar fólk lendir í vandræðum. Sjá 7. kafla.

3. Ef þú fékkst gjafabréf að gjöf

Upplýsingarnar um þig fengum við frá þeim sem gaf þér gjafabréfið: nafn og netfang (eða heimilisfang ef kort var sent í pósti) og kveðjuna. Við notum þær aðeins til að:

  • senda þér gjafabréfið þegar kaupandinn óskaði;
  • láta þig vita þegar gjafabréfið er notað: hve mikið, hjá hverjum og hvað er eftir. Kaupandinn fær ekki þær tilkynningar.

Við sendum þér aldrei markaðsefni nema þú biðjir um það. Þú átt sömu réttindi og aðrir (11. kafli).

4. Tilgangur og heimild til vinnslu

Tilgangur Heimild (6. gr. GDPR)
Ganga frá kaupum, afhenda gjafabréf, senda prentuð kort og gera fólki kleift að nota gjafabréf og skoða stöðu þeirra Samningur
Kvittanir, staðfestingar og tilkynningar um notkun gjafabréfs Samningur
Senda viðtakanda gjafabréfið og tilkynningar um notkun þess Lögmætir hagsmunir kaupanda og okkar af því að gjöfin komist til skila
Bókhald og uppgjör við samstarfsaðila Lagaskylda, meðal annars samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald
Öryggi og varnir gegn svikum og misnotkun Lögmætir hagsmunir
Villugreining og rekstur vefsins Lögmætir hagsmunir
Vefmæling (Umami) Lögmætir hagsmunir
Notkunargreining (PostHog) Samþykki
Fréttir og tilboð í tölvupósti Samþykki
Svara fyrirspurnum Lögmætir hagsmunir

Engar ákvarðanir um þig eru teknar sjálfvirkt.

5. Hverjir fá upplýsingarnar

Við seljum aldrei persónuupplýsingar.

Samstarfsaðilar. Þegar gjafabréf er notað sér samstarfsaðilinn aðeins inneign þess og gildistíma, ekki nafn eða netfang kaupanda eða viðtakanda.

Pósturinn ber prentuð kort út og sér því nafn og heimilisfang á umslaginu.

Þjónustuaðilar sem vinna fyrir okkur, eingöngu samkvæmt okkar fyrirmælum og með vinnslusamningi:

  • greiðslumiðlun (Teya);
  • hýsing vefsins og gagnagrunns;
  • útsending tölvupósts;
  • villugreining og öryggisvarnir;
  • vefmæling og, með samþykki, notkunargreining.

Við sendum þér lista yfir þjónustuaðilana ef þú óskar eftir því.

Opinberir aðilar. Ef lög krefjast þess getur okkur borið skylda til að afhenda upplýsingar, til dæmis lögreglu eða skattyfirvöldum.

6. Gögn utan EES

Sumir þjónustuaðilar okkar geyma gögn í Bandaríkjunum. Það er heimilt á grundvelli gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna eða staðlaðra samningsákvæða framkvæmdastjórnar ESB, sem tryggja sambærilega vernd og innan EES.

7. Vafrakökur

Hvað Til hvers Þarf samþykki? Hve lengi
Innskráning Heldur starfsfólki samstarfsaðila innskráðu Nei Allt að 1 ár
Pöntun sem er í gangi Geymir pöntunina milli skrefa Nei Þar til flipanum er lokað
Val þitt um vafrakökur Man hvort þú samþykktir eða hafnaðir Nei 12 mánuðir, þá spyrjum við aftur
PostHog Notkunargreining Já Smellir og skrun 30 dagar, annað 1 ár

Umami notar engar vafrakökur. PostHog fer aðeins í gang ef þú velur „Samþykkja“ í glugganum um vafrakökur sem birtist þegar þú kemur fyrst á vefinn. Það sem þú slærð inn, þar á meðal texti gjafabréfsins, er aldrei skráð og IP-tölur eru ekki vistaðar. Þú getur skipt um skoðun hvenær sem er undir „Vafrakökustillingar“ neðst á síðunni.

8. Markaðspóstur

Við sendum fréttir og tilboð aðeins þeim sem merkja sjálfir við það þegar þeir kaupa. Reiturinn er aldrei merktur fyrir fram. Þú getur afskráð þig með hlekk neðst í hverjum markaðspósti eða með því að skrifa okkur. Það hefur ekki áhrif á póst sem tengist kaupunum, svo sem kvittanir og gjafabréf.

9. Hve lengi við geymum upplýsingar

Upplýsingar Hve lengi
Gjafabréf, kaup, innlausnir og uppgjör 7 ár frá lokum reikningsárs, samkvæmt lögum um bókhald
Nöfn, netföng og kveðja á gjafabréfi 4 ár eftir að gjafabréfið rennur út, klárast eða er ógilt
Skrá yfir aðgerðir 1–7 ár eftir tegund aðgerðar
Netfang á póstlista Þar til þú afskráir þig
Annað (ókláraðar pantanir, villuskýrslur, fyrirspurnir) Að hámarki 2 ár

Að þeim tíma liðnum er upplýsingunum eytt.

10. Öryggi

Öll samskipti við vefinn eru dulkóðuð. Kóðar gjafabréfa eru geymdir dulkóðaðir og aðgangsorð á óafturkræfu formi. Allar fjárhagsaðgerðir eru skráðar þannig að ekki er hægt að breyta þeim eftir á. Ef öryggisbrestur verður sem snertir persónuupplýsingar tilkynnum við hann Persónuvernd og, þegar þörf krefur, þeim sem hann varðar.

Geymdu kóða gjafabréfsins eins og reiðufé: hver sem hefur kóðann getur notað inneignina.

11. Réttindi þín

Þú átt rétt á að:

  • fá að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig og fá afrit af þeim;
  • fá rangar upplýsingar leiðréttar;
  • fá upplýsingum eytt, nema okkur sé skylt að geyma þær, til dæmis vegna bókhalds;
  • fá vinnslu takmarkaða eða andmæla vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum;
  • fá þær upplýsingar sem þú lést okkur í té á tölvulesanlegu formi;
  • afturkalla samþykki hvenær sem er. Það hefur ekki áhrif á vinnslu sem fór fram áður.

Sendu beiðni á personuvernd@smidja.gift og við svörum innan mánaðar. Við gætum þurft að staðfesta hver þú ert, til dæmis með því að biðja þig að senda beiðnina úr netfanginu sem var notað við kaupin.

Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík, postur@personuvernd.is, personuvernd.is.

12. Breytingar

Við uppfærum stefnuna þegar þjónustan eða lög breytast. Dagsetning síðustu breytingar er efst á síðunni og allar fyrri útgáfur eru varðveittar. Ef breyting hefur veruleg áhrif á þig látum við þig vita með tölvupósti eða á vefnum.