Smiðja

Athuga stöðu gjafabréfs

Sláðu inn kóðann á gjafabréfinu þínu til að sjá stöðuna.

Algengar spurningar

Hjá öllum samstarfssmiðjunum okkar: keramikhönnuðum, skartgripahönnuðum, listmálurum og öðru handverks- og listafólki á Íslandi.

Láttu samstarfssmiðjuna sem þú velur vita að þú viljir nota Smiðju gjafabréf, hvort sem þú kemur við eða hefur samband á netinu. Smiðjan skannar QR-kóðann eða slær inn gjafabréfskóðann og upphæðin dregst af inneigninni.

Já. Inneignina má nota í einu lagi eða í áföngum. Ef þú notar hluta hennar hjá einni smiðju getur þú notað afganginn seinna, hjá sömu smiðju eða annarri.

Þá notar þú inneignina upp í verðið og greiðir smiðjunni mismuninn eins og venjulega.

Gjafabréfið gildir í tvö ár frá kaupdegi. Lokadagurinn stendur á gjafabréfinu sjálfu og birtist hér þegar þú athugar stöðuna. Inneign sem er ónotuð þegar gildistíminn rennur út fellur niður.

Nei, inneignin er ekki greidd út í peningum. Hana má aðeins nota hjá samstarfssmiðjunum okkar.

Gjafabréfið er gefið út til handhafa: hver sem er með gjafabréfskóðann getur notað inneignina, svo farðu vel með hann. Ef kóðinn týnist eða kemst í rangar hendur, hafðu samband á smidja@smidja.gift. Ef kaupandinn getur sýnt fram á kaupin getum við gert gamla kóðann ógildan og fært eftirstöðvarnar á nýjan.

Smiðjan sem þú verslaðir við ber ábyrgð á vörunni eða þjónustunni, svo hafðu fyrst samband við hana. Smiðja ber ábyrgð á gjafabréfinu sjálfu.

Ekki enn, en það er í vinnslu. Þegar það er tilbúið getur þú skannað QR-kóðann á gjafabréfinu og sett það í Apple Wallet. Þangað til getur þú geymt tölvupóstinn eða PDF-skjalið með gjafabréfinu í símanum.

Finnurðu ekki kóðann eða gengur eitthvað illa? Skrifaðu okkur á smidja@smidja.gift og við aðstoðum þig.