Smiðja
Til baka

Ragnheiður Ingunn

Reykjavík

Keramiker með stúdíó í miðbæ Reykjavíkur

Ragnheiður Ingunn — 1
Ragnheiður Ingunn — 2
Ragnheiður Ingunn — 3
Ragnheiður Ingunn — 4
Ragnheiður Ingunn — 5
Ragnheiður Ingunn — 6
Ragnheiður Ingunn — 7
Ragnheiður Ingunn — 8
Ragnheiður Ingunn — 9
Ragnheiður Ingunn — 10

Segðu það með leir

Ragnheiður Ingunn er lærður myndlistarmaður og hönnuður. Hún lauk meistaragráðu í iðnhönnun árið 1998 frá Domus Academy í Mílanó á Ítalíu og diplómu í myndlist árið 1991 frá L’École des Arts Décoratifs (Haute école des arts du Rhin) í Strassborg í Frakklandi. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum bæði hérlendis og erlendis.

Öll verk hennar eru handunninn og er því hver hlutur einstakur, leyfir hún handverkinu að njóta sín, hvort sem verkin eru rennd, steypt eða handmótuð.

Verk Ragnheiðar vísa jafnt til hversdagslegra hluta og náttúrulegra forma. Þau sækja innblástur í frumform jarðarinnar og menningarlega þætti, eftirmyndir sem hljóta nýtt hlutverk í samtímanum. Í mótun verkanna liggur örfínn þráður milli náttúru og menningar.


Kaupa gjafabréf

Kauptu gjafabréf, nothæft hjá þessari smiðju og öllum okkar samstarfssmiðjum

Vefsíða: rakidesign.is