











Um Lilju Björk
Lilja Björk Jewellery er stofnað af Lilju Björk Guðmundsdóttur og er sjálfstætt skartgripafyrirtæki með aðsetur í miðbæ Reykjavíkur. Lilja Björk flutti til Kaupmannahafnar árið 2018 til að læra skartgripahönnun, tækni og viðskiptafræði við KEA.
Lilja stofnaði LBJ árið 2023 og eru flestir skartgripirnir smíðaðir, hannaðir og framleiddir af Lilju á verkstæðinu hennar í Reykjavík. Einnig hefur hún fengið hjálp við steypun frá dönsku fyrirtæki við að gera Hug My Ear eyrnalokkana, sem eru hannaðir og 3D teiknaðir af Lilju.
Markmið fyrirtækisins er að einbeita sér að staðbundinni framleiðslu og handverki, þar sem það að fylgja nýjustu straumum er mikilvægt auk þess að bæta keim af norrænni/íslenskri náttúru inn í hönnunina.
Einnig er mikilvægt fyrir LBJ að sýna og kenna hvernig skartgripir eru búnir til en með námskeiðunum Mótaðu þitt eigið skart, sýnir Lilja hvernig flestir skartgripir eru búnir til með 6000 ára gamalli vaxmótunaraðferð.
Sjálfbærni er stór hluti af gildum LBJ og er lagt uppúr því að sporna við offramleiðslu og ofneyslu. LBJ notar endurunnið silfur, umbúðirnar þeirra eru endurunnar og endurvinnanlegar ásamt því að hluti skartgripanna er framleiddur eftir pöntun.
Hægt er að fylja Lilju Björk á Tiktok.
Vefsíða: lbj.is/is