








Um Elsu
Elsa Nielsen er grafískur hönnuður, listrænn stjórnandi, tennisstjarna og listakona sem útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands sem grafískur hönnuður árið 1999. Elsa teiknar og málar en vinnur einnig með blandaða tækni. Flest þekkja #einá dag, en árið 2015 ákvað hún að halda úti dagbók þar sem hún teiknaði eina litla trélitamynd á hverjum degi. Í dag, 16 árum síðar, er hún enn að teikna trélitamyndir reglulega undir myllumerkinu #eináviku. Þar nær hún að tvinna saman ólíka hluti á skemmtilegan hátt og kemur hver mynd á óvart.
Einnig hefur Elsa myndskreitt frímerki, kynningarefni og ýmsar barnabækur, þar á meðal bækurnar um Kormák sem flest barnafólk ætti að kannast við.
Hægt er að fylgja Elsu á Tiktok og Instagram, en þar sýnir hún frá teikniferlinu sínu.
Vefsíða: www.nielsen.is